Nýjar fréttir

Raf ehf sinnir rannsóknum á orkunýtingu í USA

Starbound
Starbound

Undanfarna mánuði hafa mælingar staðið yfir  fyrir bandarísk útgerðarfyrirtæki. Mælingar hafa verið gerðar m.a. í Starbound, flaggskipi Aleautian Spray Fisheries og einnig í Northern Hawk sem er í eigu Coastal Villages, en það er sameignarfélag byggðarlaga í Alaska. 
Framundan eru mælingar í Ocean Alaska sem er stærsta verksmiðjuskip Bandaríkjanna, nánar má fræðast um það skip hér.

ElCorrect lausnir frá Raf ehf hafa verið í notkun í Alaska undanfarin sex ár. Með slíkum lausnum er hægt að stórbæta orkunýtingu, en slíkt er ekki síst nauðsynlegt þar sem stórar verksmiðjur eru keyrðar á tugum díeselrafstöðva með tilheyrandi kostnaði. 
Meðal notenda ElCorrect lausna er Trident Seafoods, stærsta útgerðarfyrirtæki í USA. 


Svæði

Raf ehf | Bæjarhrauni 20 | 220 Hafnarfirði | Tel: +354 462 6400 | raf@rafehf.is

Staðsetning