föstudagur 04.júní 2010

Í dag föstudaginn 4. júni kynnti og varði Guðný Júlíana Jóhannsdóttir meistaraverkefni sitt „Effect of ozonized water and ozoniced ice on quality and shelf-life of cod (Gadus morhua)“
Í dag föstudaginn 4. júni kynnti og varði Guðný Júlíana Jóhannsdóttir meistaraverkefni sitt „Effect of ozonized water and ozoniced ice on quality and shelf-life of cod (Gadus morhua)“
Notkun ósons er þekkt í ýmsum matvælaiðnaði og hefur til að mynda verið notað um nokkuð skeið til að drepa bakteríur í vatni meðal annars við átöppun á drykkjarvatnsflöskur. Óson er mjög hvarfgjarnt efni og eyðist því fljótt úr matvælunum án þess að skilja eftir leifar eða aukabragð, líkt og til að mynda klór gerir. Notkun ósons í matvæla- og fiskframleiðslu er hinsvegar nýleg aðferð við gerileyðingu í sjávarafurðum.
Markmið verkefnisins var að kanna áhrif ósons á gæði hráefnis og geymsluþol á ferskum afurðum úr sjávarfangi. Til þess var virkni ósons prófuð á hreinræktir og á örverur í fiski og þar með á skemmdaferli í fiski en það sem takmarkar fyrst og fremst geymsluþol á ferskum fiski eru bakteríur á roði og í holdi og kviðarholi fisksins
Helstu niðurstöður verkefnisins voru þær að óson hefur mjög góða bakteríudrepandi eiginleika í þunnum vatnslausnum hinsvegar komu ekki fram marktæk áhrif á örverufjölda í fiski sem meðhöndlaður var með ósoni.
Leiðbeinandi Guðnýjar var Dr. Hjörleifur Einarsson prófessor við Háskólann á Akureyri.
Andmælandi var Dr. Einar Matthíasson matvælaverkfræðingur.
sjá nánar
http://unak.is/forsida/news/meistaravorn_a_svidi_audlindafraeda/

