RAF ehf

  RAF hefur í gegnum tíðina hannað ýmsar stýringar og sérútbúnað fyrir virkjanir.  Við uppsetningu á virkjunum getur verið afar mismunandi hvernig hentar

Sérútbúnaður fyrir virkjanir

 

RAF hefur í gegnum tíðina hannað ýmsar stýringar og sérútbúnað fyrir virkjanir.  Við uppsetningu á virkjunum getur verið afar mismunandi hvernig hentar best að stýra virkjuninni í hverju tilfelli fyrir sig. RAF hefur þá sett upp litlar hjálparstýringar sem stjórna þessum sérþáttum og eru þá samtengdar við aðalstýringu virkjuninnar.

RAF hefur einnig hannað vatnshæðarstýrikerfi sem stjórnar raforkuframleiðslunni eftir vatnshæðinni í uppistöðulóninu.  Með því að nota þetta stýrikerfi er tryggt að aldrei er notað meira vatn en rennur í lónið. Stýrikerfið notast eingöngu við mælingar frá vatnshæðinni svo ekki þarf að leggja neinar leiðslur að uppistöðulóninu með tilheyrandi vandkvæðum.

Hafið samband eða sendið tölvupóst ef þið hafið fyrirspurnir eða vantar nánari upplýsingar

 

 

 

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf